Flýtilyklar
Fréttir
Aðalfundur kjördæmisráðs - Kristinn endurkjörinn formaður
29.04.2019 |
Aðalfundur kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi var haldinn á Hótel Húsavík um helgina. Kristinn Frímann Árnason var endurkjörinn formaður kjördæmisráðs.
Vöfflukaffi á sumardaginn fyrsta
23.04.2019 |
Sjálfstæðismenn á Akureyri munu fagna sumarkomu með því að koma saman í vöfflukaffi í Kaupangi á sumardaginn fyrsta, 25. apríl, kl. 15:00 til 17:00. Hvetjum alla til að mæta í vöfflukaffi og fagna sumarkomu með okkur.
Kjördæmisþing á Húsavík 27. apríl
23.04.2019 |
Aðalfundur kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi verður haldinn á Fosshóteli á Húsavík laugardaginn 27. apríl nk. Um kvöldið verður þriggja rétta kvöldverður á hótelinu.
Bæjarmálafundur 15. apríl
13.04.2019 |
Bæjarmálafundur Sjálfstæðisflokksins á Akureyri verður haldinn í Kaupangi mánudaginn 15. apríl kl. 17:30. Rætt td. um stefnuræðu formanns umhverfis- og mannvirkjaráðs, ársreikning Akureyrarbæjar og skipulagsmál. Sjálfstæðismenn á Akureyri eru eindregið hvattir til að mæta og ræða bæjarmálin.