SKRÁNING Í HAMBORGARAVEISLUNA Á LOKAHÓFINU HÉR FYRIR NEÐAN
Nú sveiflum við til golfveislu!
Golfmót Sjálfstæðisflokksins á Akureyri
Golfmótið fer fram fimmtudaginn 18. september
á Jaðarsvelli. Leikur hefst samtímis á öllum 9 teigum kl. 17:30. Það er því um að gera að ryðja af sér rykið og æfa golfsveifluna!
Athugið: Takmarkaður fjöldi þátttakenda - fyrstir koma, fyrstir fá.
Skráning er hafin í GolfBox
- Golfarar með aðgang að Golfbox skrá sig þar
- Þeir sem ekki eru með Golfbox geta haft samband við skrifstofu Golfklúbbs Akureyrar á gagolf@gagolf.is
Leikfyrirkomulag
Leikið verður samkvæmt Texas Scramble, þar sem tveir leikmenn mynda lið:
- Báðir slá af teig
- Valinn er betri bolti, og báðir slá þaðan, sá sem á boltann slær fyrst
- Þannig heldur leikurinn áfram þar til bolti er í holu
Texas Scramble er oft spilað með forgjöf og hefur fyrirkomulagið notið mikilla vinsælda á undanförnum árum, enda eru mörg af fjölmennustu mótum golfklúbba einmitt Texas Scramble mót.
Lokahóf - Líka fyrir þá sem ekki keppa í mótinu!
Að loknu móti verður haldið lokahóf á Jaðar Bistro, þar sem verðlaunaafhending og önnur dagskrá fer fram. Einnig verður boðið uppá veglega hamborgaraveislu á 3.500kr. Lokahófið er opið öllum. Skráning í hamborgaraveisluna fer fram hér á íslendingur.is. Barinn opinn.
Verðlaun
Veitt verða vegleg verðlaun á mótinu, þar á meðal fyrir:
🏌️♂️ Nándarverðlaun
🏌️♀️ Lengsta teighögg
🎁 Fleiri skemmtileg verðlaun í boði, og eflaust einhverjar óvæntar uppákomur
Reglur og skilyrði
- Karlar spila af gulum teig, konur af rauðum
- Sá sem á boltann sem er valinn slær á undan
- Þegar komið er á flötina má liðið ákveða hvor leikmaður púttar fyrst
- Lið hafa sirka 1-15 cm (pútter haus) frá holu til að stilla og slá seinni boltann
- Sameiginleg vallarforgjöf kylfinganna er tekin saman og deilt í hana með tölunni 4 og má forgjöf liðs ekki vera hærri en leikforgjöf kylfings með lægri forgjöf
- Hámarks forgjöf einstaklings sem reiknuð er í vallarforgjöf er 30