Nú blásum við til veislu!
Grillveisla Sjálfstæðisflokksins á Akureyri verður haldin fimmtudaginn 22. maí á Vitanum Mathús. Húsið opnar kl. 18 og borðhald hefst kl. 19, á boðstólnum verður grillað lambakjöt og kjúklingur.
- Veislustjóri: Stefán Einar Stefánsson
- Sérstakir gestir: Jens Garðar Helgason og Diljá Mist Einarsdóttir
- Tónlistaratriði frá Daníel Andra og Önnu Skagfjörð
Miðaverð er 8.900 kr. og er skráning ekki gild fyrr en greiðsla hefur borist. Gengið er frá greiðslu með því að millifæra á reikning Fulltrúaráðs: bankanúmer: 0565-26-008838, kennitala: 580190-2519.
Við hlökkum til að sjá ykkur og eiga með ykkur skemmtilega kvöldstund!