Stefnumálin okkar
Fyrir enn betri Akureyri
Ábyrg fjármál tryggja sterka framtíð
Tryggjum áfram traustan rekstur sem þjónar íbúum og atvinnulífi.
- Við ætlum að byggja áfram á sterkum grunni með ábyrgri og framsýnni fjármálastjórn.
- Við ætlum að lækka skuldir sveitarfélagsins og bæta hag íbúa og fyrirtækja með aðhaldi í stjórnunarkostnaði og betri nýtingu tæknilausna og gervigreindar. Þar sem það á við verður verkefnum útvistað til að auka hagkvæmni.
- Við ætlum að bæta stafræna þjónustu og einfalda ferla þannig að þjónusta bæjarins verði skilvirkari, hraðari og samfelldari.
Lægri skattar og gjöld fyrir íbúa og fyrirtæki
Lækkum fasteignaskatta og gjaldskrár.
- Við ætlum að halda áfram að lækka skatta og gjöld á fólk og fyrirtæki með lægri fasteignasköttum og lægri gjaldskrám.
Aukum samkeppnishæfni fyrir sterkt atvinnulíf
Gerum Akureyrarbæ að besta bæjarfélaginu til að reka fyrirtæki.
- Við ætlum að styrkja samkeppnishæfni og tekjugrunn Akureyrarbæjar með markvissri stefnu sem styður við fyrirtækin sem hér eru, laðar að stærri fyrirtæki, fjölgar vel launuðum störfum og styður betur við frumkvöðla og nýsköpun.
- Við ætlum að gera Akureyrarbæ að enn betri stað fyrir fyrirtæki með lægri álögum á atvinnulíf og nægu framboði fjölbreyttra atvinnulóða
- Við ætlum að leggja fram skýra framtíðarsýn fyrir hafnarsvæðin þar sem mikil tækifæri liggja til atvinnuuppbyggingar og vaxtar.
- Við ætlum að elfa heilsársferðaþjónustu með uppbyggingu á Hlíðarfjalli og á golfsvæðinu.
Skýrt skipulag fyrir stórhuga framtíð
Uppfærum aðalskipulag sem styður við áframhaldandi vöxt bæjarins og tryggjum framboð íbúða- og atvinnulóða til framtíðar
- Við ætlum að uppfæra aðalskipulag bæjarins með skýrri framtíðarsýn um uppbyggingu íbúða, atvinnusvæða, samgangna og bæjarþróun.
- Við ætlum að styðja við séreignarstefnuna og auðvelda ungu fólki að komast inn á húsnæðismarkaðinn með því að tryggja hraðari uppbyggingu oghagkvæmara húsnæði.
- Við ætlum að endurskoða gjöld sem lögð eru á framkvæmdir í nýjum hverfum til að stuðla að lægra húsnæðisverði.
- Við ætlum að byggja bílastæðahús í miðbænum, milli Hólabrautar og Brekkugötu, til að styðja við öflugt bæjarlíf.
- Við ætlum að fjölga bílastæðum við heilsugæsluna í Sunnuhlíð.
- Við ætlum að bæta umferðalausnir, almenningssamgöngur og umhirðu bæjarins með aukinni áherslu á græn svæði, snyrtimennsku og aðgerðir gegn svifryki.
Öflug velferð fyrir betri lífsgæði á öllum æviskeiðum
Tryggjum fjölbreyttar húsnæðislausnir, aukið valfrelsi og sterka velferðarþjónustu með heilsueflingu, lífsgæðakjarna og félagsaðstöðu í forgangi fyrir eldri borgara.
- Við ætlum að styðja við uppbyggingu lífsgæðakjarna fyrir eldri borgara og setja kraft í uppbyggingu á íbúðarhúsnæði fyrir ört stækkandi hóp eldri borgara til að tryggja fjölbreytt val og sjálfstæða búsetu sem lengst.
- Við höldum áfram að styðja við heilsueflingu og virkni eldri borgara með uppbyggingu íþróttamannvirkja, lýðheilsukorti og lýðheilsustyrk fyrir eldri borgara. Við ætlum að tryggja að verkefnið Virk efri ár haldi áfram ásamt því að gera þjónustuna gjaldfrjálsa.
- Við ætlum að halda áfram að tryggja öfluga þjónustu við fatlað fólk með frekari uppbyggingu íbúðalausna og þjónustu.
- Við ætlum að tryggja hóflega gjaldtöku fyrir þjónustu bæjarins t.d. er varðar heimsendan mat, mat og kaffi í þjónustumiðstöðvum bæjarins og vegna heimaþjónustu.
Sterkir skólar fyrir vaxandi samfélag
Eflum grunn- og leikskólastarf og tryggjum fjölbreytt rekstrarform og valfrelsi fyrir fjölskyldur. Klárum að byggja Hagastein og byggjum nýja álmu við Lundarskóla fyrir leik- og grunnskólabörn.
- Við ætlum að halda áfram að efla gjaldfrjálsa leikskóla, efla leikskólana og styðja við faglegt starf. Með fjölgun leikskólaplássa með nýjum leikskólum, Hagasteini og Lundarseli, verður hægt að fjölga innritunar tímabilum yfir árið og bæta þannig þjónustu við fjölskyldur.
- Við ætlum að byggja nýja álmu við Lundarskóla til að mæta fjölgun barna og nýta lóð Lundarsels undir íbúðauppbyggingu sem styrkir hverfið til framtíðar.
- Við ætlum að tryggja sumarvistun fyrir börn framlínu starfsmanna með því að setja á fót þróunarverkefni í samráði við fagaðila á meðan almennar lokanir leikskóla standa yfir.
- Við ætlum að stuðla að bættum námsárangri í góðu samstarfi við starfsmenn í skólum Akureyrarbæjar og leggja áherslu á grunnfærni eins og læsi, íslensku og stærðfræði.
- Við viljum taka upp skýrara einkunnakerfi í tölustöfum, nýta upplýsingatækni betur í skólastarfi, og auka foreldrasamstarf.
- Við ætlum að auka fjölbreytni í rekstrarformi leik- og grunnskóla.
- Við ætlum að efla geðheilbrigðisstuðning og stoðþjónustu í skólum með áframhaldandi þróun á farteymi sérfræðinga sem styðja snemmtæka íhlutun, vellíðan og farsæla skólagöngu barna.
- Við ætlum að auka við sumarfrístund barna á yngsta stigi grunnskóla.
- Við ætlum að vera öflug brú milli háskóla og atvinnulífs og styrkja samstarf sem skapar fleiri tækifæri til náms og starfa.
Öflug velferð fyrir betri lífsgæði á öllum æviskeiðum
Tryggjum áfram traustan rekstur sem þjónar íbúum og atvinnulífi.
Lægri skattar og gjöld fyrir íbúa og fyrirtæki
Lækkum fasteignaskatta og gjaldskrár.
Ábyrg fjármál tryggja sterka framtíð
Tryggjum áfram traustan rekstur sem þjónar íbúum og atvinnulífi.
Lægri skattar og gjöld fyrir íbúa og fyrirtæki
Lækkum fasteignaskatta og gjaldskrár.
Ábyrg fjármál tryggja sterka framtíð
Tryggjum áfram traustan rekstur sem þjónar íbúum og atvinnulífi.
Lægri skattar og gjöld fyrir íbúa og fyrirtæki
Lækkum fasteignaskatta og gjaldskrár.
Write down an introduction title here
This is the text area for this paragraph. To change it, simply click and start typing.

