10. september 2026

Loforðin hafa verið svikin

Ræða Jens Garðars Helgasonar, varaformanns Sjálfstæðisflokksins, við stefnuræðu forsætisráðherra 9. september 2026

Virðulegur forseti – kæru landsmenn

Við myndun ríkisstjórnarinnar sagði formaður Viðreisnar skýrt, með leyfi forseta: „Ég vil taka það fram í þessu samhengi líka, við ætlum ekki að hækka tekjuskatta á fólk, við ætlum ekki að hækka skatta á lögaðila, við ætlum ekki að hækka fjármagnstekjuskatta og við ætlum ekki að hækka virðisaukaskatt á ferðaþjónustu“. Tilvitnun lýkur.

Þetta voru ekki óljós orð. Þau voru ekki sögð í hálfkæringi. Þetta voru loforð við fólk, venjulegt fólk, og fyrirtæki í landinu.

En hvað hefur dunið á landsmönnum frá því að þessi ríkisstjórn tók við. Skattahækkanir, skattahækkanir og aftur skattahækkanir. Loforðin hafa verið svikin.


Ríkisstjórnin talar um mikilvægi þess að leggja fram hallalaus fjárlög. Um það getum við verið sammála. En það eru aðrar og betri leiðir til þess. Það þarf ekki ætíð að ætlast til að almennir borgarar herði sultarólina. Ríkið getur líka gert það, og það mikið frekar heldur en heimilin. Spurningin á ekki að vera hvern getum við rukkað meira? Fyrsta spurning ábyrgra stjórnmálamanna á að vera: Hvar getum við farið betur með?

Í síðustu fjárlögum hækkuðu skattar og gjöld á heimilin og fyrirtækin í landinu um 30 milljarða. Þrátt fyrir varnaðarorð okkar hélt ríkisstjórnin ótrauð áfram. Og hvað gerðist. Verðbólgan fór á flug, atvinnuleysi jókst og vextir hækkuðu.

Virðulegur forseti, Það er fjölskyldan sem greiðir nú hærri vexti af íbúðinni sinni. Það er iðnaðarmaðurinn sem sér verkefnunum fækka. Það herðir að hjá ferðaþjónustufyrirtækinu úti á landi sem hefur fjárfest, skapað störf og byggt upp þjónustu þar sem áður var lítið atvinnuframboð. Já, loforðin hafa verið svikin.

Verst er að þessi ríkisstjórn hefur ekkert lært. Formaður Flokks fólksins er ennþá með visa kortið og er hvergi hætt að eyða um efni fram, af annarra manna fé.

Nú á að hækka skatta og gjöld um 34 milljarða! 34 milljarða til viðbótar við þá þrjátíu sem voru lagðir á þjóðina fyrir tæpu ári síðan. Enn er loforðin svikin.


Ferðaþjónustan fær yfir 11 milljarða í nýjar álögur, byggingariðnaðurinn auknar byrðar og einstaklingar greiða hærri skatta. Sjúklingar borga meira og hækkun bankaskatts mun þrýsta upp vöxtum. Enginn sleppur. Allra síst venjulega fólkið sem ríkisstjórnin ætlaði að hlífa.

Því kemur það ekkert á óvart að 85% þeirra sem tóku afstöðu, treysta ekki ríkisstjórninni til að ná tökum á efnahagsmálunum og það er mér til efs að nokkur ríkisstjórn í lýðveldissögunni hafi fengið annan eins áfellisdóm frá þjóðinni.

En þetta er ekki eini dómur þjóðarinnar yfir verkum og stefnu ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur. Ríkisstjórnarflokkarnir guldu afhroð í síðustu sveitarstjórnarkosningum. Hraðaupphlaup hæstvirts utanríkisráðherra í að koma þjóðinni í Evrópusambandið endaði með óverjandi skoti í eigið mark.

En hæstvirtur forsætisráðherra segist vera að laga Ísland. Miðað við 64 milljarða skatta og gjaldahækkanir þá er bara verið að laga Ísland að einu og það er sósíalismi. Þar sem fólkið er fyrir ríkið, en ríkið er ekki fyrir fólkið.

Kæru landsmenn,

Ríkisstjórnin skreytir sig með verkum sem hvíla á því að leggja þyngri og þyngri byrðar á hinn vinnandi mann. Um slíka stjórn komst skáldið góða frá Fagraskógi ágætlega að orði:

Löggjafar, sem lítið skilja,
lúta aldrei fólksins vilja,
koma öllu á vonarvöl,
verða sjálfir – þjóðarböl.
.