7. september 2026
Umræðufundur með Njáli Trausta 12. september

Málfundafélagið Sleipnir heldur umræðufund í Geislagötu 5 laugardaginn 12. september kl. 10:00.
Njáll Trausti Friðbertsson, alþingismaður, flytur framsögu og svarar fyrirspurnum. Rætt um stöðuna í pólitíkinni; fjárlagafrumvarpið, niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB, samgöngu- og byggðamál, og öryggis- og varnarmál - helstu málin í umræðunni nú við byrjun þingstarfa í vikunni. Njáll Trausti situr í fjárlaganefnd þingsins og er varaformaður Íslandsdeildar Nató-þingsins.
Fundarstjóri: Stefán Friðrik Stefánsson, formaður Sleipnis.
Allir velkomnir - heitt á könnunni

