14. febrúar 2024

Umræðufundur með Óla Birni 17. febrúar

Málfundafélagið Sleipnir heldur umræðufund í Geislagötu 5 (2. hæð - gengið inn að norðan) laugardaginn 17. febrúar kl. 11:00.

Óli Björn Kárason, alþingismaður Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi og fyrrum þingflokksformaður, flytur framsögu og svarar fyrirspurnum. Rætt almennt um stöðuna í pólitíkinni. 

Fundarstjóri: Stefán Friðrik Stefánsson, formaður Sleipnis.


Heitt á könnunni - allir velkomnir.