20. október 2026

Virkari eigandi og ný nálgun í stjórn Norðurorku

Á aukaaðalfundi Norðurorku sem fram fór í dag var stigið mikilvægt skref í því hvernig Akureyrarbær hyggst sinna hlutverki sínu sem stærsti hluthafi fyrirtækisins. Í fyrsta sinn voru óháðir stjórnarmenn tilnefndir til setu í stjórn félagsins.

Þetta er breyting sem ég tel bæði tímabæra og mikilvæga. Hún er hluti af þeirri vegferð að styrkja stjórnarhætti félaga í eigu Akureyrarbæjar, gera þá faglegri og skýra betur hlutverk okkar sem eiganda.

Fagleg stjórn og skýr eigandastefna

Akureyrarbær er ekki eingöngu hluthafi í Norðurorku. Fyrirtækið veitir grunnþjónustu sem hefur bein áhrif á heimili og atvinnulíf á Akureyri og á starfssvæði fyrirtækisins. Eignarhaldinu fylgir því rík samfélagsleg ábyrgð.

Eigandastefnu Akureyrarbæjar er ætlað að endurspegla þá ábyrgð og þær væntingar sem við höfum til þeirra félaga sem eru í eigu sveitarfélagsins. Þar þurfa faglegir stjórnarhættir, fjárhagsleg sjálfbærni, langtímahugsun og hagsmunir samfélagsins að fara saman.

Val óháðra stjórnarmanna er liður í þessari nálgun. Með því er verið að leggja meiri áherslu á að stjórn Norðurorku búi yfir þeirri þekkingu, reynslu og faglegu breidd sem nauðsynleg er fyrir fyrirtæki af þessari stærð.

Við höfum jafnframt verið að skoða fyrirkomulag við tilnefningu og val stjórnarmanna sem hluta af þessari vinnu. Um það hefur meðal annars verið fjallað innan Akureyrarbæjar. Við vinnu tilnefningarnefndar Akureyrarbæjar um val á óháðum stjórnarmönnum Norðurorku var auglýst eftir áhugasömum aðilum og bárust nefndinni 59 umsóknir um tvö stjórnarsæti. Sá mikli áhugi lýsir vel sterkri stöðu fyrirtækisins innan samfélagsins.

Eigandinn þarf að vera virkur

Þessi breytta nálgun snýst þó um meira en breytingu á skipan stjórnar. Hún snýst líka um það hvernig Akureyrarbær beitir sér sem meirihlutaeigandi.

Við sem sveitarfélag höfum sett okkur það markmið frá upphafi vinnu í sumar við gerð fjárhagsáætlunar að hækkanir á gjaldskrám Akureyrarbæjar verði ekki meiri en 2,5% og að gjaldskrár er snúa að þjónustu við barnafjölskyldur haldist að mestu óbreyttar. Er það í samræmi við ályktun Landsþings Sambands íslenskra sveitarfélaga og sameiginlega yfirlýsingu stjórnvalda og aðila á vinnumarkaði í haust. Ef það markmið á að vera trúverðugt tel ég eðlilegt að sama aðhaldssjónarmið komi fram í afstöðu okkar sem hluthafi í fyrirtæki sem veita íbúum grunnþjónustu.

Þess vegna eigum við ekki að standa hjá þegar kemur að þróun gjaldskráa Norðurorku. Í þeim anda lagði Akureyrarbær til á aukaaðalfundi félagsins að hækkanir á gjaldskrám þess takmarkist við 2,5% um áramót. Var þetta einróma ákvörðun allra eigenda á fundinum.

Þetta þýðir ekki að hluthafar taki yfir rekstur fyrirtækisins eða ákvarðanir stjórnar. Það þýðir hins vegar að við sem eigendur setjum fram skýrar væntingar og köllum eftir því að allar raunhæfar leiðir til hagræðingar og aðhalds séu skoðaðar áður en aukinn kostnaður er færður yfir á heimili og fyrirtæki.

2,5% markmiðið þarf að hafa raunverulega merkingu

Norðurorka þarf að sjálfsögðu að standa fjárhagslega traustum fótum, sinna nauðsynlegum fjárfestingum og tryggja örugga þjónustu til framtíðar. Þær skyldur hverfa ekki. En þegar kostnaður hækkar á fyrsta spurningin ekki sjálfkrafa að vera: Hversu mikið þurfum við að hækka gjaldskrána? Hún þarf líka að vera: Hvað getum við gert öðruvísi?

Með óháðum stjórnarmönnum, skýrri eigandastefnu og virkari afstöðu til fjárfestinga- og fjárhagsáætlana er Akureyrarbær að taka skref í átt að faglegri og markvissari meðferð eignarhalds síns.

Við ætlum að vera ábyrgur og virkur eigandi. Eigandi sem treystir stjórn fyrirtækisins til að sinna sínu hlutverki, en er jafnframt skýr um væntingar sínar og gleymir ekki að á endanum snýst eignarhald sveitarfélagsins líka um hagsmuni samfélagsins og íbúanna.


Berglind Ósk Guðmundsdóttir

bæjarstjóri á Akureyri