15. október 2026

Þegar allir falla

Því verður seint haldið fram að ég hafi verið heltekinn af bókunum og náminu á menntaskólaárum mínum á Akureyri. Ég náði þó alltaf að halda mig réttum megin á prófunum en virk þátttaka í félagslífi og -starfi dró þó einkunnirnar heldur betur niður. En til voru þau skólasystkin mín sem lögðu mikinn metnað í námið og létu félagsstarfið frekar sitja á hakanum. Að fá átta á prófi var áfall fyrir þetta fólk en jólakraftaverk að vori ef slíkt henti mig. Lærdómurinn er: þeir sem leggja mikið á sig eiga að uppskera í hlutfalli við það. Það er hvorki óréttlátt né ósanngjarnt.

Hugsum okkur nú ef við hefðum látið hugmyndafræði jafnaðarmanna ráða för við einkunnagjöfina. Þeir hefðu líklega litið á mismuninn sem vandamál sem þyrfti að leiðrétta. Af hverju ætti einn nemandi að fá tíu en annar aðeins fimm? Er það ekki ójöfnuður? Lausnin er augljós. Leggja skal allar einkunnir saman og dreifa þeim jafnt á nemendurna. Sá sem fékk tíu yrði að láta af hendi hluta af einkunn sinni til þess sem fékk fimm. Báðir fengju sjö komma fimm og allir sáttir? Eða hvað?

Fyrsta árið gæti þetta ef til vill gengið upp. En hvað gerist árið eftir? Sá sem lagði nótt við dag sér fljótt að aukið erfiði skilar honum engu. Hvers vegna ætti hann að fórna tíma sínum, leggja meira á sig og stefna hærra ef árangurinn verður hvort sem er tekinn af honum og dreift til annarra? Líklega bara miklu skemmtilegra að hella sér í félagslíf skólans. Og sá sem lagði minna á sig? Hann lærir fljótt að það borgar sig að treysta á vinnu annarra.

Smám saman breytist hegðun beggja. Metnaðurinn dvínar, hvatinn er ekki fyrir hendi og árangurinn versnar. Að lokum fær sá duglegi fimm og einkunn slugsans komin í þrjá. Meðaltalið lækkar og báðir falla.

Þetta er kjarni vandans við jafnaðarstefnu sem gerir jöfnuð að markmiði í sjálfu sér. Hún skeytir ekki um hvernig verðmætin verða til og einblínir þess í stað á dreifingu þeirra. En verðmæti verða ekki til með ákvörðunum stjórnmálamanna og embættismanna. Þau verða til þegar fólk vinnur, fjárfestir, stofnar fyrirtæki, tekur áhættu og skapar eitthvað sem býr til raunveruleg verðmæti fyrir aðra.

Þegar stjórnvöld hækka skatta og álögur í hvert sinn sem einstaklingur eða fyrirtæki nær árangri eru skilaboðin skýr. Því meira sem þú leggur af mörkum, þeim mun meira verður tekið af þér. Slík stefna dregur úr hvata til vinnu, fjárfestinga og frumkvæðis. Hún veikir ekki aðeins þá sem skapa verðmætin heldur að lokum allt samfélagið.

Það er enginn skortur á stjórnmálamönnum sem lofa að eyða annarra manna fé. Það hljómar alltaf vel ef einhver annar á að borga brúsann. Skorturinn liggur fremur í þeim sem spyrja hvernig eigi að skapa meiri verðmæti. Við eigum ekki að sætta okkur við að stjórnmálamenn keppist um að skipta kökunni og minnka hana um leið.

Réttlátt samfélag er ekki samfélag þar sem allir enda með sömu einkunn. Það er samfélag þar sem allir fá jöfn tækifæri til að leggja sitt af mörkum, njóta árangurs erfiðis síns og bæta stöðu sína af eigin rammleik. Davíð Oddsson orðaði vel hlutverk ríkisins: „Við verðum að breyta viðhorfi fólks til hins opinbera. Það á ekki að vera eins og síldarnót til að festa fólk í, heldur eins og öryggisnet, sem enginn fellur niður fyrir.“

Frelsi og ábyrgð fara saman. Réttur fólks til að njóta árangurs síns er ekki andstæða samkenndar. Þvert á móti. Samfélag sem umbunar framtaki og verðmætasköpun skapar meiri möguleika til að hjálpa þeim sem standa höllum fæti.

Við eigum því ekki að spyrja hvernig við getum tryggt að allir fái sömu einkunn. Við eigum að spyrja hvernig við getum skapað samfélag þar sem allir hafa tækifæri til að fá tíu.

Því þegar stjórnmálamenn gera út á að jafna niður árangur annarra endar það ekki með því að allir standi jafnfætis á toppnum. Það endar með því að allir standa á botninum og horfa upp á tindinn.


Jens Garðar Helgason

varaformaður Sjálfstæðisflokksins og þingmaður Norðausturkjördæmis.