11. febrúar 2026
Sterkur Sjálfstæðisflokkur - sterkt bæjarfélag

Um síðustu helgi hlaut ég það mikilvæga traust að taka að mér hlutverk oddvita. Fyrir það er ég afar þakklát og tek þessu verkefni af fullri alvöru og auðmýkt.
Berglind Ósk Guðmundsdóttir
oddviti framboðslista Sjálfstæðisflokksins á Akureyri
Traust af þessu tagi er ekki aðeins hvatning heldur líka ábyrgð. Ábyrgð gagnvart flokksfólki, gagnvart bæjarbúum og gagnvart framtíð Akureyrar. Ég lít á þetta sem skýrt kall um að leggja mig alla fram, hlusta, vinna af heilindum og standa vörð um þau gildi sem skipta fólk máli.
Sjálfstæðisflokkurinn á Akureyri býr yfir miklum styrk. Hér er öflugt fólk með ólíkan bakgrunn og sameiginlegan vilja til að bæta samfélagið okkar. Nú skiptir máli að halda áfram saman, með skýra sýn, jákvæðni og kjark í baráttunni fram undan.
Ég vona innilega að allt sjálfstæðisfólk taki þátt með okkur í þeirri vinnu sem fram undan er, með hugmyndum, samtali og samstöðu. Því sterkari sem við stöndum saman, því betur getum við unnið fyrir Akureyri og fólkið sem hér býr.
Framtíð Akureyrar snýst um að skapa tækifæri, efla þjónustu og tryggja að bæjarfélagið þróist í takt við þarfir fólksins sem hér býr. Ég hlakka til að vinna að þeim verkefnum með ykkur og eiga opið samtal um það sem skiptir mestu máli.
Kærar þakkir fyrir traustið. Nú hefst vinna sem ég mun sinna af heilum hug.
Berglind Ósk Guðmundsdóttir
oddviti framboðslista Sjálfstæðisflokksins á Akureyri

