10. febrúar 2026
Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson kjörinn formaður Sjálfstæðisfélags Akureyrar

Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson var kjörinn formaður Sjálfstæðisfélags Akureyrar á aðalfundi félagsins í kvöld. Hann tekur við formennsku af Jóni Þór Kristjánssyni sem gaf ekki kost á sér til endurkjörs. Þorvaldur Lúðvík var ritari stjórnar félagsins á síðasta starfsári og hefur gegnt formennsku í kjörnefnd Sjálfstæðisflokksins á Akureyri við val á framboðslista flokksins í vor.
Auk Þorvaldar Lúðvíks voru kjörin í aðalstjórn: Dagný Reykjalín, Eðvarð Þór Eðvarðsson, Sara Halldórsdóttir og Þórleifur Stefán Björnsson. Í varastjórn voru kjörin: Arna Rut Gunnarsdóttir, Daníel Sigurður Eðvaldsson, Telma Ósk Þórhallsdóttir, Vilmundur Aðalsteinn Árnason og Svava Þ. Hjaltalín.
Tillaga stjórnar um óbreytt félagsgjald, 4.500 kr. var samþykkt.
Tillaga stjórnar um óbreytt félagsgjald, 4.500 kr. var samþykkt.
Nýkjörinni stjórn Sjálfstæðisfélags Akureyrar er óskað velfarnaðar í störfum sínum á starfsárinu.

