17. maí 2026

Sjálfstæðisflokkurinn stærstur á Akureyri

Sjálfstæðisflokkurinn hlaut flest atkvæði í sveitarstjórnarkosningunum á Akureyri sem fram fóru laugardaginn 16. maí og endurheimti því stöðu sína sem stærsta framboðið í bænum, bætti við sig tæpu einu og hálfu prósenti, hlaut 19,4% atkvæða. Berglind Ósk Guðmundsdóttir og Heimir Örn Árnason voru kjörin í bæjarstjórn Akureyrar. Þrátt fyrir fylgisaukningu náði þó Arna Rut Gunnarsdóttir ekki kjöri.

Kjörsókn var 67,9%, örlítið meiri en í kosningum 2022. Meirihluti Sjálfstæðisflokks, L-lista og Miðflokks féll í kosningunum. Viðræður um myndun nýs meirihluta við L-lista og Framsóknarflokk eru hafnar.

Sjálfstæðisflokkurinn hlaut 1.992 atkvæði, L-listinn hlaut 1.976 atkvæði. Það munar því aðeins sextán atkvæðum á framboðunum. L-listinn hlaut tvo kjörna og missti einn mann, Samfylkingin bætti við sig manni og hlaut tvo, Framsókn hélt sínum tveimur meðan VG og Miðflokkur hafa áfram einn mann. Þórhallur Jónsson náði kjöri í bæjarstjórn fyrir Akureyrarlistann en Viðreisn mistókst að ná inn.

Við þökkum þeim sem kusu Sjálfstæðisflokkinn fyrir að treysta okkur fyrir atkvæði sínu og færa okkur áhrif til að vinna að framfaramálum í þágu bæjarbúa, hér eftir sem hingað til.