Sigurður J. Sigurðsson áttræður

Sigurður J. Sigurðsson, fyrrum oddviti Sjálfstæðisflokksins á Akureyri, er áttræður í dag.
Sigurður hóf ungur virka þátttöku í félagsstarfi Sjálfstæðisflokksins á Akureyri, sat lengi í stjórn, Varðar, félags ungra sjálfstæðismanna, og formaður félagsins um tíma.
Sigurður sat í bæjarstjórn Akureyrar í 28 ár, á árunum 1974-2002. Hann var 28 ára að aldri þegar hann var fyrst kjörinn í bæjarstjórn vorið 1974 og sat eins og fyrr segir í önnur 28 ár.
Sigurður varð oddviti Sjálfstæðisflokksins á Akureyri þegar Gunnar Ragnars varð framkvæmdastjóri Útgerðarfélags Akureyrar 1988 og var oddviti flokksins í áratug. Hann leiddi flokkinn í tveimur kosningum, 1990 og 1994. Fyrst var hann bæði forseti bæjarstjórnar og formaður bæjarráðs, fyrst í samstarfi við Alþýðuflokk og síðan við Alþýðubandalagið allt til ársins 1994. Sjálfstæðisflokkurinn sat í minnihluta á árunum 1994-1998.
Í kosningunum vorið 1998 steig Sigurður J. til hliðar sem oddviti Sjálfstæðisflokksins á Akureyri þegar ákveðið var að Kristján Þór Júlíusson, sem verið hafði bæjarstjóri fyrst í heimabæ sínum Dalvík og síðan á Ísafirði, yrði oddviti flokksins og bæjarstjóraefni. Sigurður setti sig þá undir og ákvað að taka fjórða sætið sem varð baráttusæti flokksins í kosningabaráttunni.
Stórsigur vannst í kosningunum 1998 þegar Sjálfstæðisflokkurinn hlaut fimm menn kjörna. Kristján Þór varð bæjarstjóri en Sigurður J. varð að nýju forseti bæjarstjórnar eins og áður hafði verið í meirihlutasamstarfi.
Sigurður J. var um árabil umboðsmaður og útibússtjóri Skeljungs á Akureyri en söðlaði um í ársbyrjun 2002 þegar hann varð fjármálastjóri Norðurorku. Þá ákvað hann að stíga til hliðar úr bæjarstjórn skömmu fyrir sveitarstjórnarkosningar og baðst lausnar úr bæjarstjórn eftir áratugasetu eins og fyrr segir.
Sjálfstæðismenn á Akureyri óska Sigurði J. og fjölskyldu hans til hamingju með stórafmæli hans.
Stefán Friðrik Stefánsson
ritstjóri Íslendings
Hér efst er samantekt um Sigurð úr Íslendingi í kosningabaráttunni 1990 sem enn á vel við sem umfjöllun um ævi hans og störf. Neðri myndin er úr kosningabaráttunni vorið 1998 þegar Sigurður tók fjórða sætið. Með honum eru aðrir í hópi þeirra sem skipuðu sex efstu sætin; Kristján Þór Júlíusson, Valgerður Hrólfsdóttir (sem lést sumarið 2001), Þórarinn B. Jónsson (sem skipaði eitt af heiðurssætum framboðslistans nú í vor), Vilborg Gunnarsdóttir og Þóra Ákadóttir (sem varð forseti bæjarstjórnar við afsögn Sigurðar J. árið 2002).


