10. maí 2026

Ræðum kosningamálin við Berglindi Ósk 11. maí

Málfundafélagið Sleipnir boðar til funda með efstu frambjóðendum á lista Sjálfstæðisflokksins á Akureyri til að ræða kosningamálin á kosningaskrifstofunni í Furuvöllum 5. Kosningaskrifstofan verður opin kl. 16:00-18:00 og fer fundurinn svo fram við lok auglýstrar opnunar.


Berglind Ósk Guðmundsdóttir, oddviti framboðslistans, verður gestur á fundi mánudaginn 11. maí kl. 18:00-19:00. Við kynnumst Berglindi Ósk, áherslum hennar, þeim málum sem hún brennur fyrir og persónunni á bakvið frambjóðandann. Farið yfir stöðuna í baráttunni í byrjun kosningavikunnar. Góð brýning fyrir okkur inn í lokasprettinn.


Fundarstjóri: Stefán Friðrik Stefánsson, formaður Sleipnis


Allir velkomnir - heitt á könnunni