10. maí 2026

Opinn fundur með Njáli Trausta og Eyjólfi Magnúsi

Hvað eru gagnaver og eiga þau erindi á Íslandi?

Mánudaginn 11. maí kl. 16:30 bjóðum við til opins fundar um hlutverk gagnavera á Íslandi og hvaða áhrif þau hafa á atvinnulíf, samfélag og framtíðaruppbyggingu.

Með okkur verða Njáll Trausti Friðbertsson, alþingismaður, og Eyjólfur Magnús Kristinsson, forstjóri atNorth.

Fundurinn fer fram á kosningaskrifstofu Sjálfstæðisflokksins á Akureyri, Furuvöllum 5 (gegnt ELKO).

Rætt verður meðal annars um:
- Hvað gagnaver eru og hvernig þau starfa
- Hvers vegna Ísland er áhugaverður kostur fyrir gagnaver
- Hver ávinningur bæjarins og samfélagsins er af rekstri stórs gagnavers

Allir velkomnir — hlökkum til að sjá ykkur!