20. apríl 2026

Þórdís Kolbrún verður sendiherra og hættir í stjórnmálum

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, 1. þingmaður Suðvesturkjördæmis og fyrrum varaformaður Sjálfstæðisflokksins, var í dag skipuð sendiherra. Hún biðst því lausnar sem alþingismaður og hættir þátttöku í stjórnmálum eftir tvo áratugi í flokksstarfi Sjálfstæðisflokksins. Þórdís Kolbrún sat í stjórn SUS 2007-2011, var kosningastjóri flokksins í Norðvesturkjördæmi 2013 og í kjölfarið framkvæmdastjóri þingflokks 2013-2014 og var aðstoðarmaður Ólafar Nordal í innanríkisráðuneytinu 2014-2016. Þórdís varð síðar meir eftirmaður Ólafar sem varaformaður Sjálfstæðisflokksins, varaformaður á árunum 2018-2025.

Þórdís Kolbrún var kjörin á þing í haustkosningunum 2016 og varð í kjölfarið ferðamála- nýsköpunar- og iðnaðarráðherra 2016-2021, utanríkisráðherra 2021-2024 með stuttri viðkomu í dómsmálaráðuneytinu 2019 og í fjármálaráðuneytinu 2023-2024 uns hún varð utanríkisráðherra að nýju í lok ráðherraferilsins í aðdraganda nóvemberkosninga 2024. Þórdís sat á þingi fyrir Norðvesturkjördæmi 2016-2024 en var þingmaður Suðvesturkjördæmis undir lok þingferilsins 2024-2026 og 1. þingmaður kjördæmisins eftir að Bjarni Benediktsson hætti í stjórnmálum.

Yfirlýsing Þórdísar Kolbrúnar um vistaskiptin birtist á facebook-síðu hennar og er eftirfarandi:

"Í dag var tilkynnt ákvörðun um skipan mína í embætti sendiherra. Af því leiðir að ég tel rétt að segja mig frá þingstörfum. Ég mun formlega tilkynna forseta Alþingis um að ég segi af mér þingmennsku og hef upplýst þingflokkinn minn.

Um nokkurt skeið hef ég í málflutningi mínum lagt áherslu á að komnir séu upp tímar í alþjóðamálum sem reyna munu öðruvísi og meira á Ísland en verið hefur undanfarna áratugi, jafnvel frá því við tókum öll mál okkar í eigin hendur árið 1944.

Þau viðfangsefni ná í mínum huga langt út fyrir persónulegan metnað stjórnmálamanna eða einstakra stjórnmálaflokka.
Undanfarin misseri hef ég hugleitt framtíðina og hvernig ég geti best gert gagn fyrir Ísland og íslenska hagsmuni. Með hliðsjón af reynslu minni, þekkingu og tengslum á sviði alþjóðamála tel ég að ég geti, við núverandi aðstæður, gert mest gagn fyrir íslensku þjóðina með starfi á því sviði.

Sendiherrar gegna ákaflega mikilvægu hlutverki fyrir Ísland. Því hef ég kynnst vel sem ráðherra og þingmaður í utanríkismálanefnd. Ég mun því nálgast þetta verkefni af þeirri auðmýkt sem þarf til þess að læra að sinna nýju hlutverki en um leið sjálfstrausti í þeirri viðleitni að leyfa getu minni, reynslu og þekkingu að koma að gagni.

Ég er þakklát vinum mínum og félögum mínum í Sjálfstæðisflokknum fyrir farsælt samstarf á margvíslegum vettvangi undanfarin tuttugu ár. Fyrir það traust og umboð sem ég hef hlotið á þeim vettvangi þakka ég af öllu hjarta."