20. apríl 2026

Fundur með Guðrúnu Hafsteinsdóttur 22. apríl

Miðvikudaginn 22. apríl kl. 12:00 stendur Sjálfstæðisflokkurinn fyrir opnum súpufundi á Akureyri á kosningaskrifstofunni að Furuvöllum 5, gegnt Elko.

Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, kynnir efnahagstillögur flokksins undir yfirskriftinni „Léttum róðurinn“. Tillögurnar eru m.a. afrakstur gríðarlegrar vinnu þingflokksins og efnahags- og viðskiptanefndar Sjálfstæðisflokksins.

Allir hjartanlega velkomnir!