15. nóvember 2026
Laugardagsfundur með Guðrúnu Hafsteinsdóttur 21. nóvember

Sjálfstæðisfélagið á Akureyri heldur laugardagsfund í Geislagötu 5 (gengið inn að norðan) laugardaginn 21. nóvember kl. 10:00.
Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins verður gestur fundarins, og flytur framsögu. Að því loknu verða umræður. Rætt almennt um stöðuna í pólitíkinni og málefni landsbyggðarinnar.
Allir velkomnir - heitt á könnunni og boðið upp á sjóðheitar vöfflur með morgunkaffinu.

