15. nóvember 2026

Óli Björn Kárason - fundur og bókakynning 19. nóvember

Málfundafélagið Sleipnir heldur fund í Lóni á Hótel Akureyri fimmtudagskvöldið 19. nóvember kl. 19:30.

Óli Björn Kárason, fyrrum alþingismaður, ræðir um hugsjónapólitík og kynnir nýútkomna bók sína Villigötur valdsins. Hægt verður að kaupa bókina og fá hana áritaða.

Bókin er ádeila á útþenslu ríkisins, ríkishyggju og pólitískan rétttrúnað. Í bókinni hvetur Óli Björn hægrimenn til að setja hugmyndabaráttuna í forgang og standa vörð um sjálfstæði landsins, frjáls viðskipti og frelsi einstaklingsins.

Allir velkomnir - heitt á könnunni og hægt að kaupa létta drykki.