6. apríl 2026
Kynning á framboðslista og áherslumálum 10. apríl

Sjálfstæðisflokkurinn á Akureyri kynnir framboðslistann sinn og helstu áherslumál í komandi bæjarstjórnarkosningum á föstudagskvöldið næsta, 10. apríl kl. 18:00, á kosningaskrifstofu sinni á Furuvöllum 5, þar sem Ormsson var áður til húsa - gegnt ELKO.
Allir velkomnir! Hlökkum til að sjá ykkur
Á listanum eru 22 einstaklingar með fjölbreyttan bakgrunn sem brenna fyrir því að halda áfram á þeirri vegferð sem Akureyri er á þar sem öll lífsgæði mynda grundvöll til sóknar.
Flokkurinn hefur unnið góða málefnavinnu að undanförnu sem hófst á Bæjarþingi í byrjun janúar. Frambjóðendur eru spennt að kynna helstu áherslumálin fyrir ykkur á næstkomandi föstudagskvöld.
Léttar veitingar.
Allir velkomnir! Hlökkum til að sjá ykkur

