3. apríl 2026

Aðalfundur kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi 11. apríl

Aðalfundur kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi verður haldinn á Múlabergi á Hótel KEA laugardaginn 11. apríl nk.

Hús og skráning opnar kl. 10:30. Fundargjald er 5.000kr. Aðalfundur verður frá kl. 11:00 til 16:00.

Skráning á fundinn

Fundarkaffi er innifalið í þinggjaldi er ásamt sætum bita eftir hádegi í kaffihlé. Kaffi/te á meðan á fundi stendur, sætur biti eftir hádegi sem er súkkulaðikökubitar & makkarónur. Í hádegisverði eru grillaðar kjúklingabringur með villisvepparisotto, steikt grænmeti, piparsósa, salat, súrdeigsbrauð, þeytt smjör. 

Að loknum fundi verður hægt að fara í 
Skógarböðin frá kl. 16:30 til 19:00. Fordrykkur verður á kosningaskrifstofu Sjálfstæðisflokksins á Akureyri í Furuvöllum 5 frá kl. 17:00 til kl. 19:00 

Mæting á Múlaberg KEA kl. 19:00, kvöldverðarhóf hefst kl. 20:00. Miðað er við að skemmtun ljúki kl. 23:30.

Í kvöldverð er grilluð nautalund borin fram með beikonsultu, pomme Anna kartöflupressu, ristuðum gulrótum, confit sveppum og béarnaise sósu (að sjálfsögu því það er alltaf béarnaise á Akureyri). Í eftirrétt er súkkulaðikaka, vanilluís, hvítsúkkulaðikrem, súkkulaðimulningur og jarðarberjagel. Síðan er boðið upp á kaffi. Verð er 11.500 kr.

Í kvöldverðarhófið eru allir sjálfstæðismenn velkomnir og gestir með þeim. Nauðsynlegt er þó að skrá sig og gesti.