Berglind Ósk Guðmundsdóttir nýr oddviti Sjálfstæðisflokksins á Akureyri
Berglind Ósk Guðmundsdóttir var kjörin í 1. sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins á Akureyri á röðunarfundi í Naustaskóla. Berglind Ósk hlaut 61 atkvæði en Þórhallur Jónsson hlaut 55 atkvæði. 119 greiddu atkvæði. Þrjú atkvæði voru auð og ógild.