3. febrúar 2026
Röðunarfundur í fulltrúaráði í Naustaskóla 7. febrúar

Fulltrúaráð Sjálfstæðisflokksins á Akureyri kemur saman til fundar í Naustaskóla laugardaginn 7. febrúar nk. kl. 11:00. Þar verður kosið um fjögur efstu sætin á framboðslista fyrir sveitarstjórnarkosningar 16. maí nk. í svonefndri röðun, þar sem bæði aðal- og varafulltrúar í fulltrúaráði hafa atkvæðisrétt.
Dagskrá:
10:30 Skráning á fundinn (fundargjald: 1.000 kr. - veitingar á fundarstað innifaldar í gjaldinu) ath. enginn posi
11:00 Fundur hefst – formaður kjörnefndar fer yfir ferlið í kosningu um efstu fjögur sætin
11:10 Kosning hefst – kynning frambjóðenda og kosið í hvert sæti fyrir sig
Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna á Akureyri mun aftur funda síðar þegar tillaga kjörnefndar að skipan framboðslista flokksins í sveitarstjórnarkosningum 2026 í heild verður lögð fram. Þann fund sitja einungis aðalmenn í fulltrúaráðinu.

