24. ágúst 2026

Golfmót Sjálfstæðisflokksins á Akureyri 25. september

Golfmót Sjálfstæðisflokksins verður haldið á Jaðarsvelli föstudaginn 25. september nk. kl. 17:00 (mæting: 16:45)

Vegleg verðlaun verða í mótinu, nándarverðlaun, lengsta teighögg og fleira skemmtilegt.

Skráning á golfmótið

Greiðslu er krafist við skráningu og er mótsgjald óendurkræft eftir 15.september. Þeir kylfingar sem ekki eru í golfklúbbi og geta ekki skráð sig í mótið sjálfir geta haft samband við skrifstofu GA á skrifstofa@gagolf.is eða í síma 462-2974 til að láta skrá sig. 

Leikfyrirkomulag:

Leikið verður samkvæmt Texas Scramble, þar sem tveir leikmenn mynda lið:

1. Báðir slá af teig

2. Valinn er betri bolti, og báðir slá þaðan, sá sem á boltann slær fyrst

3. Þannig heldur leikurinn áfram þar til bolti er í holu

Verðlaun

Veitt verða vegleg verðlaun á mótinu, þar á meðal fyrir:

Nándarverðlaun

Lengsta teighögg

Fleiri skemmtileg verðlaun í boði, og eflaust einhverjar óvæntar uppákomur

Reglur og skilyrði

● Karlar spila af teigum 54, konur af teigum 45, karlar 70+ af teigum 45

● Sá sem á boltann sem er valinn slær á undan

● Þegar komið er á flötina má liðið ákveða hvor leikmaður púttar fyrst

● Sameiginleg vallarforgjöf kylfinganna er tekin saman og deilt í hana með tölunni 4.

● Hámarks forgjöf einstaklings sem reiknuð er í vallarforgjöf er 30

Ræst verður út af öllum teigum klukkan 17:00, spilaðar verða 9 holur af golfi.

Eins og fyrr segir:
MÆTING Í GOLFSKÁLANN Á JAÐRI EKKI SEINNA EN 16:45.