5. mars 2026

Fundur í fulltrúaráði 14. mars

Ágætu fulltrúar í fulltrúaráði Sjálfstæðisfélaganna á Akureyri.

Hér með er boðað til fundar í fulltrúaráði laugardaginn 14. mars nk. klukkan 10:00 í húsnæði flokksins, Geislagötu 5, 2. hæð, gengið inn að norðan. 

Tilefni fundarins er að bera upp til samþykktar breytingu á framboðslista flokksins fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Einn frambjóðandi á framboðslista flokksins sem samþykktur var 24. febrúar sl. hefur dregið framboð sitt til baka.

Vegna þessa er eitt mál á dagskrá fundarins 14. mars og það er: Tillaga stjórnar fulltrúaráðs að framboðslista Sjálfstæðisflokksins á Akureyri.


F.h. stjórnar fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna á Akureyri,
Sólveig María Árnadóttir, formaður