6. febrúar 2024

Aðalfundur Varnar, félags sjálfstæðiskvenna á Akureyri, 15. febrúar

Aðalfundur Varnar, félags sjálfstæðiskvenna á Akureyri, verður haldinn þann 15. febrúar kl. 17:30 í Geislagötu 5, 2. hæð (gengið inn að norðan). 

Dagskrá fundarins er eftirfarandi:  

1. Skýrsla stjórnar
2. Lagabreytingar
3. Kosning formanns, stjórnar og varastjórnar
4. Kosning fulltrúa í fulltrúaráð Sjálfstæðisfélaganna
5. Kosning fulltrúa í kjördæmisráð Norðausturkjördæmis
6. Önnur mál


Stjórn Varnar, félags sjálfstæðiskvenna á Akureyri