28. febrúar 2024
Að loknum aðalfundi Varnar


Aðalfundur Varnar, félags sjálfstæðiskvenna á Akureyri, var haldinn í Geislagötu 5 þann 15. febrúar sl.
Gerður Ringsted var kjörin formaður Varnar. Gerður var varaformaður Varnar 2012-2023 og hefur gegnt formennsku frá haustinu 2023.
Auk hennar voru kjörnar í aðalstjórn: Aníta Pétursdóttir, Auður B. Ólafsdóttir, Hildur Brynjarsdóttir og Svava Þ. Hjaltalín. Í varastjórn voru kjörnar: Emelía Bára Jónsdóttir, Gyða Birnisdóttir og Íris Ósk Gísladóttir.
Nýkjörinni stjórn Varnar er óskað til hamingju með kjörið og góðs gengis í félagsstörfum á næsta starfsári.