10. mars 2026
Eldri borgara kaffi 14. mars

Sjálfstæðisflokkurinn á Akureyri býður í kaffispjall fyrir eldri borgara í Lóni, nýjum sal Hótels Akureyrar í Hafnarstræti 73, laugardaginn 14. mars kl. 14:00.
Mætum öll og ræðum málin yfir góðum kaffibolla og kræsingum. Hlökkum til að sjá ykkur!
Þróunar-, þekkingar- og framkvæmdafélagið ÍBA 55+ vinnur nú að því að hugmyndir um lífsgæðakjarna með íbúðum fyrir eldra fólk verði að veruleika á Akureyri. Íbúðirnar hafa þá sérstöðu að íbúar þeirra eiga að geta búið þar út lífið þrátt fyrir að heilsan hraki.
Karl Erlendsson og Guðmundur Magnússon standa á bakvið verkefnið og verða þeir með kynningu á því. Umræður um verkefnið verður svo að kynningu lokinni.
Mætum öll og ræðum málin yfir góðum kaffibolla og kræsingum. Hlökkum til að sjá ykkur!

