13. febrúar 2026
Bæjarmálafundur 16. febrúar

Bæjarmálafundur Sjálfstæðisflokksins á Akureyri verður haldinn í Geislagötu 5 mánudaginn 16. febrúar kl. 18:00.
Farið yfir stöðuna í bæjarmálunum og dagskrá bæjarstjórnarfundar. Ásgeir Örn Blöndal Jóhannsson, stjórnarformaður Fallorku, fer yfir kaup Orkusölunnar á söluhluta félagsins. Undir önnur mál ræðum við sveitarstjórnarkosningar sem eru framundan, hvað finnst fólki vera mikilvægast að leggja áherslu á í næstu kosningum?
Fundarstjóri: Heimir Örn Árnason, formaður bæjarráðs.
Allir velkomnir - heitt á könnunni

