10. janúar 2026

Auglýst eftir framboðum

Ákveðið hefur verið að röðun um val frambjóðenda Sjálfstæðisflokksins á Akureyri við næstu sveitarstjórnarkosningar fari fram á fundi aðal- og varamanna í fulltrúaráði laugardaginn 7. febrúar nk. Kosið verður um fjögur efstu sæti framboðslistans á fundinum.

Hér með er auglýst eftir framboðum til setu á framboðslista. Framboð skal bundið við flokksbundinn einstakling. Frambjóðendur skulu vera kjörgengir í sveitarstjórnarkosningum 16. maí 2026.

Framboðsfrestur er til og með 6. febrúar 2026 kl. 12:00

Kjörnefnd er heimilt að tilnefna frambjóðendur til röðunar til viðbótar við þá sem bjóða sig fram eftir að framboðsfresti lýkur. Val á framboðslista og röðun í sæti verður samkvæmt samræmdum reglum Sjálfstæðisflokksins við röðun á lista.


Hægt er að fá nánari upplýsingar um röðun og skila inn framboði með því að hafa samband við Þorvald Lúðvík Sigurjónsson, formann kjörnefndar, með því að senda tölvupóst á thorvaldur.ludvik@gmail.com eða hringja í 859-3316.