Ræðum kosningamálin við Örnu Rut 6. maí

Málfundafélagið Sleipnir boðar til funda með efstu frambjóðendum á lista Sjálfstæðisflokksins á Akureyri til að ræða kosningamálin á kosningaskrifstofunni í Furuvöllum 5. Kosningaskrifstofan verður opin kl. 16:00-18:00 og fer fundurinn svo fram við lok auglýstrar opnunar.
Arna Rut Gunnarsdóttir, frambjóðandi í 3. sæti, verður gestur á fundi miðvikudaginn 6. maí kl. 18:00-19:00. Við kynnumst Örnu Rut, áherslum hennar, þeim málum sem hún brennur fyrir og persónunni á bakvið frambjóðandann.
Tilvalið að líta á fund og ræða málin og fara svo eftir málefnafund Sleipnis á fund um kosningamálin sem Morgunblaðið heldur á Græna hattinum kl. 20:00.
Fundarstjóri: Stefán Friðrik Stefánsson, formaður Sleipnis
Allir velkomnir - heitt á könnunni
Næsti fundur:
Berglind Ósk - 11. maí kl. 18-19

