24. apríl 2026

Ræðum kosningamálin við Þórhall

Málfundafélagið Sleipnir boðar til funda með efstu frambjóðendum á lista Sjálfstæðisflokksins á Akureyri til að ræða kosningamálin á kosningaskrifstofunni í Furuvöllum 5. Kosningaskrifstofan verður opin kl. 16:00-18:00 og fer fundurinn svo fram við lok auglýstrar opnunar.

Þórhallur Harðarson, frambjóðandi í 4. sæti, verður gestur á fundi mánudaginn 27. apríl kl. 18:00-19:00. Við kynnumst Þórhalli, áherslum hans, þeim málum sem hann brennur fyrir og persónunni á bakvið frambjóðandann.

Fundarstjóri: Stefán Friðrik Stefánsson, formaður Sleipnis

Allir velkomnir - heitt á könnunni


Næstu fundir:
Arna Rut - 30. apríl kl. 18:00
Heimir Örn - 6. maí kl. 18:00
Berglind Ósk - 11. maí kl. 18:00