16. júní 2026

Lausnin er ekki meiri skattar

Nú fer að líða að lokum yfirstandandi þings og enn mörg mál óafgreidd, þar á meðal fjármálaáætlun. Orðræða stjórnarmeirihlutans um hin ýmsu mál sem á eftir að afgreiða hefur verið í belg og biðu og byggst að miklu leyti á frösum. Ræsum vélarnar er einn þeirra frasa.

Nýjum hápunkti var hins vegar náð þegar þingmaður stjórnarmeirihlutans lét eftirfarandi orð falla í pallborðsumræðum á fundi sem Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu héldu nýverið: „Á fjárlögum er nú kominn um 800 milljarða halli og við verðum að bregðast við með því að sækja meiri tekjur og þá er ekkert óeðlilegt að horfa þangað sem gengur vel, og það gengur bara vel í fjármálakerfinu.“

Það er ekki hægt annað en að staldra við þessi ummæli og velta því fyrir sér hvert við séum eiginlega komin á Alþingi þegar einu úrræðin sem ríkisstjórnin og þingmenn stjórnarmeirihlutans bera á borð landsmanna eru að auka álögur á þjóðfélagsþegna lýðveldisins, fólk og fyrirtæki sem hér búa og starfa.

Markmið fjármálaáætlunar ríkisstjórnarinnar um að stöðva hallarekstur ríkissjóðs er gott og gilt. Hins vegar er það þyngra en tárum taki að hún ætli sér fyrst og fremst að reyna að ná því markmiði með því að auka álögur. Sér í lagi þegar fyrir liggur að hærri skattar og gjöld hafa almennt neikvæð áhrif á framtakssemi og verðmætasköpun fólks og fyrirtækja og áhrif þeirra á mögulegar framtíðartekjur ríkissjóðs óvissar, í besta falli.

Að hugsa út fyrir vinstra boxið


Það skal öllum ljóst vera að það eru aðrar leiðir færar til að stöðva hallarekstur ríkissjóðs. Fyrr á árinu lagði Sjálfstæðisflokkurinn fram efnahagstillögur sem einmitt leggja grunninn að annarri greiðfærri leið. Sjálfstæðisflokkurinn vill lækka skatta og álögur, leyfa atvinnulífinu að blómstra og létta róðurinn fyrir fólkið og fyrirtækin í landinu. Staðreyndin er nefnilega sú að takist að ýta undir verðmætasköpun og styðja við atvinnulífið með því að ríkið geri minna, betur, stækkar kakan sem hinar ýmsu álögur eru teknar af og ríkissjóður fær fleiri aura í vasann.

Fyrrgreind ummæli þingmannsins lýsa ákveðnu viðhorfi til verðmætasköpunar og í raun til þeirrar áhættu sem fólk tekur þegar það ákveður að stofna og reka fyrirtæki. Það er óboðlegt öllum þeim sem hér búa og byggja þetta fallega land að ríkisstjórnin virðist ætla sér að seilast gegndarlaust í vasa fólks og fyrirtækja.

Frasinn ræsum vélarnar virðist aðeins eiga við skattagleði ríkisstjórnarinnar. „Vér mótmælum allir“ eru fleyg orð sem látin voru falla við ærið tilefni á sínum tíma. Því miður eiga þau nú einnig við. Því fyrr sem ríkisstjórnin og þingmenn stjórnarmeirihlutans átta sig á því að verðmætin falla ekki af himnum ofan og að það er ekki hægt að auka álögur endalaust, því betra.

Það verður að hugsa út fyrir vinstra boxið og finna aðrar lausnir. Undirritaður hvetur ríkisstjórnina, þingmenn stjórnarmeirihlutans og í raun þingheim allan til að líta til lausna Sjálfstæðisflokksins.


Jens Garðar Helgason
varaformaður Sjálfstæðisflokksins