26. október 2026
Laugardagsfundur með Örnu Rut 31. október

Laugardagsfundur með Örnu Rut Gunnarsdóttur, varabæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins og varaformanni í velferðarráði Akureyrarbæjar, verður haldinn í Geislagötu 5 laugardaginn 31. október kl. 10:00.
Arna Rut fer yfir velferðarmál bæjarins - hvað hefur verið gert að undanförnu og hvað er á döfinni hjá velferðarráði. Umræður að því loknu.
Allir velkomnir - heitt á könnunni.

