Laugardagsfundur með Ármanni Atla 7. nóvember

Laugardagsfundur með Ármanni Atla Eiríkssyni, eiganda og framkvæmdastjóra Kaffistofunnar, verður haldinn í Geislagötu 5 (gengið inn að norðan) laugardaginn 7. nóvember kl. 10:00.
Ármann Atli fer yfir hans bakgrunn, hvernig þetta fyrirtæki byrjaði, hvernig það hefur þróast og kynnir fyrir okkur hvaða einstaka kaffi hann er að bjóða uppá.
Kaffistofan byrjaði undir merkjum Kaffipressunnar sem kaffivagn hjá KA heimilinu árið 2020. Það var svo 4 árum seinna sem kaffihús í Brekkugötu 5 opnaði sem og Kaffipressan tók yfir rekstur Kaffistofunnar og sameinaðist reksturinn undir einu nafni, Kaffistofan.
Í dag er Kaffistofan eina sérkaffibrennslan á Akureyri og rekur heildstætt kerfi þar sem kaffihús, brennsla og netverslun vinna saman sem ein heild. Markmiðið er enn það sama og í upphafi: Að litlir hlutir skipti máli og að gott kaffi verði til með stöðugleika, ferlum og natni.
Allir velkomnir - heitt á könnunni, ferskt og gott kaffi frá Kaffistofunni að sjálfsögðu!

