15. febrúar 2026

Gerður endurkjörin formaður Varnar

Aðalfundur Varnar, félags sjálfstæðiskvenna á Akureyri, var haldinn í Geislagötu 5, 11. febrúar sl. Gerður Ringsted var endurkjörin formaður Varnar. Hún hefur gegnt formennsku frá haustinu 2023 og var varaformaður félagsins 2012-2023. 


Auk hennar voru kjörnar í aðalstjórn: Aðalheiður Steina Guðmundsdóttir, Auður B. Ólafsdóttir, Freydís Lilja Þormóðsdóttir og Kristina Björk Arnórsdóttir. Í varastjórn voru kjörnar: Arna Rut Gunnarsdóttir, Embla Blöndal Ásgeirsdóttir og Svava Þ. Hjaltalín. 



Nýkjörinni stjórn Varnar er óskað til hamingju með kjörið og góðs gengis í félagsstörfum á næsta starfsári.