6. júní 2026

Framfarir í þágu bæjarbúa

Nýr meirihluti hefur nú tekið til starfa í Akureyrarbæ með skýra sýn og metnaðarfullan málefnasamning að leiðarljósi. Fram undan eru mikilvægar ákvarðanir og verkefni sem munu móta samfélagið okkar til framtíðar og við göngum til þeirra verka með ábyrgð, samvinnu og bjartsýni að leiðarljósi.

Málefnasamningur meirihlutans byggist á þeirri sannfæringu að bærinn búi yfir miklum styrkleikum og fjölmörgum tækifærum. Við ætlum að leggja áherslu á öfluga þjónustu við íbúa, áframhaldandi kröftuga uppbyggingu og markvissar aðgerðir til að efla lífsgæði í sveitarfélaginu. Þar má nefna aukna áherslu á húsnæðismál, skemmtilegt bæjarlíf, góða menntun, trausta velferð og öflugt atvinnulíf sem skapar verðmæti og fjölbreytt störf.

Aukin samkeppnishæfni og ábyrgur rekstur


Á sama tíma ætlum við að sýna ábyrgð í rekstri sveitarfélagsins. Háir vextir og verðbólga hafa gríðarleg áhrif á heimili, fyrirtæki og sveitarfélög um land allt. Þótt vonir standi til að efnahagsaðstæður fari smám saman batnandi á næstu misserum eru enn blikur á lofti og því mikilvægt að gæta aðhalds, forgangsraða verkefnum af skynsemi og tryggja að fjármunir bæjarbúa séu nýttir með sem bestum hætti.


Eitt af meginmarkmiðum okkar er að fjölga íbúum og styrkja samkeppnishæfni bæjarins. Til þess þarf sveitarfélagið að vera eftirsóknarverður staður til búsetu, atvinnusköpunar og fjárfestinga. Við viljum efla samstarf við atvinnulífið, einfalda ferla þar sem kostur er og skapa umhverfi sem styður við frumkvæði, nýsköpun og vöxt. Sterkt atvinnulíf er forsenda öflugs samfélags.

Hagsmunir bæjarbúa í fyrirrúmi


Við munum einnig standa vörð um hagsmuni bæjarbúa gagnvart ríkisvaldinu. Sveitarfélög gegna lykilhlutverki í daglegu lífi fólks og mikilvægt er að verkefni og fjármögnun fari saman. Við munum beita okkur af festu fyrir þeim innviðum og þeirri þjónustu sem samfélagið okkar þarf á að halda.

Framtíðin verður ekki aðeins mótuð af þeim lausnum sem við finnum á áskorunum heldur einnig af þeim tækifærum sem við nýtum. Með samstilltu átaki, ábyrgri stjórn og skýrri framtíðarsýn erum við sannfærð um að fram undan séu góðir tímar fyrir bæinn okkar og alla íbúa hans.


Berglind Ósk Guðmundsdóttir
bæjarstjóri og oddviti Sjálfstæðisflokksins á Akureyri