7. febrúar 2026
Berglind Ósk, Heimir Örn, Arna Rut og Þórhallur í forystu Sjálfstæðisflokksins í vor

Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna á Akureyri kom saman á röðunarfundi í Naustaskóla í dag og kaus í fjögur efstu sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í sveitarstjórnarkosningunum 16. maí nk. Kosningabarátta flokksins hefst nú af fullum krafti í kjölfar þess að niðurstaða er fengin um skipan efstu sæta á framboðslistanum okkar í vor.
Berglind Ósk Guðmundsdóttir, lögfræðingur og fyrrum alþingismaður, sigraði Þórhall Jónsson í kosningu um leiðtogasætið. Hún hlaut 61 atkvæði en Þórhallur 55 atkvæði. Berglind Ósk verður með þessu yngst til að leiða Sjálfstæðisflokkinn á Akureyri í sveitarstjórnarkosningum frá því hann bauð fyrst fram í sveitarstjórnarkosningunum 1934. 32 ára gömul er hún enn á ungliðaaldri í flokknum. Berglind var áður varabæjarfulltrúi á árunum 2018-2021 er hún var kjörin á þing.
Heimir Örn Árnason, bæjarfulltrúi, sigraði einnig Þórhall Jónsson í kosningu um annað sætið. Heimir Örn hlaut 74 atkvæði en Þórhallur 45 atkvæði. Heimir Örn hefur setið í bæjarstjórn og verið oddviti Sjálfstæðisflokksins á Akureyri á kjörtímabilinu sem er að ljúka, verið formaður bæjarráðs og formaður fræðslu- og lýðheilsuráðs bæjarins.
Arna Rut Gunnarsdóttir kemur öflug inn í þriðja sætið, nýliði í starfi flokksins en engu að síður vel kynnt í bænum fyrir störf sín í atvinnulífinu og á vettvangi heilbrigðismála. Hún hafði naumlega betur í kosningu við Þorstein Kristjánsson, hún hlaut 60 atkvæði en Þorsteinn hlaut 56 atkvæði.
Þórhallur Harðarson hlaut svo kosningu í fjórða sætið. Hann hlaut 69 atkvæði en Vilmundur Árnason hlaut 10. 40 atkvæði voru auð eða ógild. Þórhallur varð í sjötta sætinu í röðun 2018 og fimmti í prófkjöri 2022. Hann hefur setið í nefndum fyrir flokkinn í átta ár og hefur einnig verið formaður kjördæmisráðs frá árinu 2022, og áður gjaldkeri kjördæmisráðs 2012-2021.
Saman mynda Berglind Ósk, Heimir Örn, Arna Rut og Þórhallur Harðarson öflugt teymi í forystu Sjálfstæðisflokksins á Akureyri í næstu sveitarstjórnarkosningum. Kosningin í fjögur efstu sætin á röðunarfundinum er bindandi fyrir kjörnefnd sem mun gera tillögu að skipan listans í heild á fundi aðalmanna fulltrúaráðs nú í framhaldinu.
Stefán Friðrik Stefánsson
ritstjóri Íslendings