Flýtilyklar
Aðalfundur Sjálfstæðisfélags Akureyrar 8. febrúar
Aðalfundur Sjálfstæðisfélags Akureyrar verður haldinn í húsnæði flokksins Geislagötu 5, 2 hæð, gengið inn að norðan, fimmtudaginn 8. febrúar nk. kl. 20:00. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf.
Sérstakur gestur fundarins verður Njáll Trausti Friðbjörnsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi.
Dagskrá fundarins er eftirfarandi, samkvæmt lögum Sjálfstæðisfélags Akureyrar:
1. Skýrsla stjórnar
2. Reikningsskil – (Stjórn Sjálfstæðisfélags Akureyrar hefur falið fulltrúaráði Sjálfstæðisfélaganna á Akureyri umsjón með reikningum félagsins sem heimild er fyrir skv. 13. grein laga Sjálfstæðisfélags Akureyrar)
3. Ákvörðun árgjalds
4. Lagabreytingar – (engin tillaga á dagskrá fundarins)
5. Kosning formanns og stjórnar
6. Kosning fulltrúa í fulltrúaráð Sjálfstæðisfélaganna á Akureyri.
7. Kosning fulltrúa í kjördæmisráð Norðausturkjördæmis
8. Önnur mál
Framboð til stjórnar skal tilkynna til formanns Sjálfstæðisfélags Akureyrar, Þórhalls Jónssonar.
Stjórn Sjálfstæðisfélags Akureyrar