Sjálfstæðisflokkurinn stærstur í Norðausturkjördæmi í könnun RHA

Skv. nýrri könnun RHA mælist Sjálfstæðisflokkurinn með mest fylgi, 23%, í Norðausturkjördæmi í alþingiskosningunum 25. september nk. og hlyti þrjá þingmenn kjörna. 

Framsóknarflokkur mælist með 18,2% fylgi, VG með 14,2%, Samfylkingin með 10,9%, Miðflokkurinn 9,7%, Píratar 7,9%, Sósíalistaflokkurinn 7,1%, Viðreisn 4,6%, Flokkur fólksins 3,9% og Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn með 0,4%.

Um er að ræða netkönnun meðal fólks í álitsgjafahópi RHA í Norðausturkjördæmi

• 1354 svöruðu könnuninni.

• Gögnin voru vigtuð eftir búsetu og aldri til þess að endurspegla betur lýðfræðina í síðustu kosningum. Eftir vigtun eru svörin 1268

• Könnunin var framkvæmd af Rannsóknarmiðstöð Háskólans á Akureyri (RHA) dagana 26. ágúst til 6. september sl.


Svæði

Sjálfstæðisflokkurinn á Akureyri  |  Geislagötu 5   |   Ritstjóri Íslendings: Stefán Friðrik Stefánsson  |  XD-AK á facebook  |  XD-NA á facebook