Flýtilyklar
Fréttir
Bæjarmálafundur 3. febrúar
01.02.2020 |
Bæjarmálafundur Sjálfstæðisflokksins á Akureyri verður haldinn í Kaupangi mánudaginn 3. febrúar kl. 17:30. Rætt td um vinnu við skipulag miðbæjarins, skýrslu um forgangsröðun framkvæmda við íþróttamannvirki, skipulagsmál, niðurstöður þjónustukönnunar Gallups fyrir Akureyrarbæ og væntanlega heimsókn þingflokks Sjálfstæðisflokksins til Akureyrar. Sjálfstæðismenn á Akureyri eru eindregið hvattir til að mæta og ræða bæjarmálin.
Aðalfundur Sjálfstæðisfélags Akureyrar 6. febrúar
28.01.2020 |
Sjálfstæðisfélagið á Akureyri heldur aðalfund fimmtudaginn 6. febrúar kl. 20:00 í húsnæði félagsins í Kaupangi á Akureyri. Á dagskrá fundarins eru hefðbundin aðalfundarstörf samkvæmt 8. gr laga félagsins. Stjórn lýsir eftir framboðum til formannskjörs sem og setu í aðal- og varastjórn.
Umræðufundur með Kristjáni Þór 1. febrúar
26.01.2020 |
Málfundafélagið Sleipnir boðar til umræðufundar í Kaupangi laugardaginn 1. febrúar kl. 11:00. Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, flytur framsögu og svarar fyrirspurnum. Heitt á könnunni - allir velkomnir.
Bjarni Benediktsson fimmtugur
26.01.2020 |
Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, er fimmtugur í dag. Bjarni hefur gegnt formennsku í Sjálfstæðisflokknum frá 2009 og ráðherraembætti frá 2013.
Laugardagsspjall með Þórhalli Jónssyni 25. janúar
20.01.2020 |
25. janúar nk. verður Þórhallur Jónsson, bæjarfulltrúi, í Kaupangi á milli kl. 10:00 og 12:00 til skrafs og ráðagerða. Heitt á könnunni - allir velkomnir.
Bæjarmálafundur 20. janúar
19.01.2020 |
Bæjarmálafundur Sjálfstæðisflokksins á Akureyri verður haldinn í Kaupangi mánudaginn 20. janúar kl. 17:30. Rætt td um áherslur bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins í bæjarmálum á nýju ári, viðauka við fjárhagsáætlun og skipulagsmál. Sjálfstæðismenn á Akureyri eru eindregið hvattir til að mæta og ræða bæjarmálin.
Umræðufundur með Njáli Trausta 18. janúar
15.01.2020 |
Málfundafélagið Sleipnir boðar til umræðufundar í Kaupangi laugardaginn 18. janúar kl. 10:30. Njáll Trausti Friðbertsson, alþingismaður, fer yfir stöðuna í pólitíkinni við upphaf þingstarfa á nýju ári og svarar fyrirspurnum. Allir velkomnir - heitt á könnunni.