Flýtilyklar
Fréttir
Umræðufundur með Kristjáni Þór og Njáli Trausta 5. október
01.10.2019 |
Málfundafélagið Sleipnir boðar til umræðufundar í Kaupangi í kjördæmaviku þingmanna laugardaginn 5. október kl. 11:00. Rætt um stöðuna í pólitíkinni og málefni kjördæmisins. Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, og Njáll Trausti Friðbertsson, alþingismaður, flytja framsögu og svara fyrirspurnum. Allir velkomnir - heitt á könnunni
Bæjarmálafundur 30. september
27.09.2019 |
Bæjarmálafundur Sjálfstæðisflokksins á Akureyri verður haldinn í Kaupangi mánudaginn 30. september kl. 17:30. Rætt td um stöðu mála í Norðurorku, Akureyrarstofu og hafnarstjórn, skipulagsmál og viðauka við fjárhagsáætlun 2019. Fundarstjóri verður Eva Hrund Einarsdóttir. Sjálfstæðisfólk á Akureyri er eindregið hvatt til að mæta og ræða bæjarmálin.
Jón Gunnarsson kjörinn ritari Sjálfstæðisflokksins
14.09.2019 |
Jón Gunnarsson hefur verið kjörinn ritari Sjálfstæðisflokksins á flokksráðsfundi á Hilton Nordica Hótel í Reykjavík. Jón hlaut 135 atkvæði, 52,9%. Áslaug Hulda Jónsdóttir hlaut 117 atkvæði, 45,2%. Aðrir hlutu færri atkvæði. Auðir og ógildir seðlar voru 4. 259 greiddu atkvæði.
Bæjarmálafundur 16. september
14.09.2019 |
Bæjarmálafundur Sjálfstæðisflokksins á Akureyri verður haldinn í Kaupangi mánudaginn 16. september kl. 17.30. Sjálfstæðismenn á Akureyri eru eindregið hvattir til að mæta og ræða bæjarmálin.
Aðalfundur Kjördæmissamtaka ungra sjálfstæðismanna í Norðausturkjördæmi 21. september
13.09.2019 |
Aðalfundur Kjördæmissamtaka ungra sjálfstæðismanna í Norðausturkjördæmi (KUSNA) verður haldinn í Kaupangi á Akureyri 21. september kl. 12:00. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf skv. lögum KUSNA.
Umræðufundur með Njáli Trausta 7. september
02.09.2019 |
Málfundafélagið Sleipnir boðar til umræðufundar í Kaupangi laugardaginn 7. september kl. 10:00. Njáll Trausti Friðbertsson, alþingismaður, fer yfir stöðuna í pólitíkinni við upphaf þingvetrar og svarar fyrirspurnum. Allir velkomnir - heitt á könnunni.