Fréttir

Bæjarmálafundur 2. september

Bæjarmálafundur 2. september

Bæjarmálafundur Sjálfstæðisflokksins á Akureyri verður haldinn í Kaupangi mánudaginn 2. september nk. kl. 17:30. Rætt um td stefnuræðu formanns stjórnsýsluráðs (bæjarráðs), brothættar byggðir, siða- og samskiptareglur kjörinna fulltrúa, stefnu velferðarráðs Akureyrarbæjar á sviði velferðartækni og fréttir úr fræðsluráði. Sjálfstæðismenn á Akureyri eru eindregið hvattir til að mæta og ræða bæjarmálin.

Fundur með þingmönnum Sjálfstæðisflokksins 15. ágúst

Fundur með þingmönnum Sjálfstæðisflokksins 15. ágúst

Þingmenn Sjálfstæðisflokksins halda fund fimmtudaginn 15. ágúst nk. kl. 20:00 í Kaupangi á Akureyri. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins og fjármálaráðherra, Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins, Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og þingmennirnir Sigríður Á. Andersen, Njáll Trausti Friðbertsson, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir og Vilhjálmur Árnason ræða stjórnmálaviðhorfið og svara spurningum fundarmanna.

Gönguferð og grill í Kjarnaskógi 18. ágúst

Gönguferð og grill í Kjarnaskógi 18. ágúst

Gönguferð í Kjarnaskógi í tilefni af 90 ára afmæli Sjálfstæðisflokksins sunnudaginn 18. ágúst nk. kl. 12:00. Trjálundur sem eldri flokksmenn gróðursettu í Naustaborgum um og uppúr miðri síðustu öld skoðaður undir leiðsögn. Á eftir verður grillað á svæðinu við blakvellina. Gangan hefst stundvíslega kl. 12:00 (mæting í kringum 11:50) og grillað um eða uppúr kl. 13:00. Allir hjartanlega velkomnir - hittumst og eigum saman góða stund.

Svæði

Sjálfstæðisflokkurinn á Akureyri  |  Geislagötu 5   |   Ritstjóri Íslendings: Stefán Friðrik Stefánsson  |  XD-AK á facebook  |  XD-NA á facebook