Flýtilyklar
Fréttir
Tökum samtalið við forystuna
01.05.2018 |
Hádegisfundur í Hofi fimmtudaginn 3. maí kl. 12:00. Forysta Sjálfstæðisflokksins - Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra, Þórdís Kolbrún Gylfadóttir ferðamála-, iðnaðar og nýsköpunarráðherra, og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, formaður utanríkismálanefndar, verða gestir okkar. Komdu og taktu þátt í pólitískri umræðu og hafðu þannig áhrif. Boðið verður upp á ljúffenga fiskisúpu. Allir velkomnir!
Stefnuskrá Sjálfstæðisflokksins á Akureyri í kosningum í vor
28.04.2018 |
Stefnuskrá Sjálfstæðisflokksins á Akureyri var kynnt á fundi í Norðurslóðasetrinu í dag - hún hefur verið borin í öll hús í sveitarfélaginu. Stefnuskrána má lesa hér á vefnum.
Stefnuskrá Sjálfstæðisflokksins á Akureyri kynnt
24.04.2018 |
Stefnuskrá Sjálfstæðisflokksins á Akureyri verður kynnt í Norðurslóðasetrinu, Strandgötu 53, á laugardaginn 28. apríl n.k. kl. 12:00. Súpa, brauð og kaffi í boði. Allir velkomnir!
Bæjarmálafundur 23. apríl
22.04.2018 |
Bæjarmálafundur Sjálfstæðisflokksins á Akureyri verður haldinn í Kaupangi mánudaginn 23. apríl kl. 17:30. Rætt um ársreikning Akureyrarbæjar 2017, stefnuræðu formanns Fræðsluráðs, viðauka við fjárhagsáætlun, skipulagsmál og málefni öldungaráðs. Sjálfstæðismenn á Akureyri eru hvattir til að mæta og ræða bæjarmálin.
Vöfflukaffi á sumardaginn fyrsta
17.04.2018 |
Sjálfstæðisflokkurinn á Akureyri verður með vöfflukaffi í húsnæði sínu í Kaupangi þann 19. apríl sumardaginn fyrsta frá kl. 15-17. Komdu við og hittu frambjóðendur. Allir velkomnir!
Samráðsfundur um gerð stefnuskrár D-listans
11.04.2018 |
Fimmtudagskvöldið 12. apríl kl. 19.30 er boðað til samráðsfundar með sjálfstæðismönnum á Akureyri um drög að stefnuskrá flokksins fyrir bæjarstjórnarkosningarnar 26. maí. Fundurinn verður í aðstöðu okkar í Kaupangi. Drögin verða kynnt og um leið er kallað eftir viðbrögðum frá ykkur um efni þeirra. Allar ábendingar ykkar verða vel þegnar. Mætum og ræðum saman, þannig höfum við áhrif.
Bæjarmálafundur 9. apríl
08.04.2018 |
Bæjarmálafundur Sjálfstæðisflokksins á Akureyri verður haldinn í Kaupangi mánudaginn 9. apríl kl. 17.30. Rætt um stefnuræðu formanns Akureyrstofu, tillögu til þingsályktunar um stefnumótandi byggðaáætlun, skipulagsmál og undirbúning fyrir sveitarstjórnarkosningar. Sjálfstæðismenn á Akureyri eru eindregið hvattir til að mæta og ræða bæjarmálin.