Flýtilyklar
Fréttir
Bæjarmálafundur 19. mars
18.03.2018 |
Bæjarmálafundur Sjálfstæðisflokksins á Akureyri verður haldinn í Kaupangi mánudaginn 19. mars kl. 17:30 þar sem málefni bæjarstjórnarfundar 20. mars verða rædd, t.d. stefnuræða formanns skipulagsráðs og málefni húsnæðislauss fólks og reglur um sérstakan húsnæðisstuðning. Sjálfstæðismenn á Akureyri eru eindregið hvattir til að mæta og ræða bæjarmálin.
Landsfundur um helgina - upplýsingar um fundinn
12.03.2018 |
43. landsfundur Sjálfstæðisflokksins verður haldinn helgina 16. - 18. mars, í Laugardalshöll í Reykjavík. Ræða Bjarna Benediktssonar, fjármálaráðherra og formanns Sjálfstæðisflokksins, verður á föstudeginum kl. 16:30. Hér eru nánari upplýsingar um fundinn.
Bæjarmalafundur 5. mars
04.03.2018 |
Bæjarmálafundur Sjálfstæðisflokksins á Akureyri verður haldinn í Kaupangi mánudaginn 19. febrúar kl. 17:30 þar sem málefni bæjarstjórnarfundar verða rædd. Sjálfstæðismenn á Akureyri eru eindregið hvattir til að mæta og ræða bæjarmálin.
Aðalfundur kjördæmisráðs - Kristinn áfram formaður
03.03.2018 |
Aðalfundur kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi var haldinn á Sel-Hóteli í Mývatnssveit í dag. Gestir fundarins voru Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ritari Sjálfstæðisflokksins, og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, iðnaðar- ferðamála- og nýsköpunarráðherra, sem ávörpuðu fundinn auk Kristjáns Þórs Júlíussonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, og Njáls Trausta Friðbertssonar, alþingismanns.