Fréttir

Aðalfundur kjördæmisráðs í Mývatnssveit 3. mars

Aðalfundur kjördæmisráðs í Mývatnssveit 3. mars

Aðalfundur kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi verður haldinn á Sel-Hóteli í Mývatnssveit laugardaginn 3. mars nk. Gestir fundarins verða Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ritari Sjálfstæðisflokksins, og Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, og ávarpa fundinn auk þingmanna flokksins í kjördæminu.

Bæjarmálafundur 19. febrúar

Bæjarmálafundur 19. febrúar

Bæjarmálafundur Sjálfstæðisflokkins á Akureyri verður haldinn í Kaupangi mánudaginn 19. febrúar kl. 17:30. Rætt um stefnumál og vinnu við málefnaskrá í næstu kosningum og þau mál sem hæst bera í bæjarstjórn, t.d. aðalskipulag Akureyrarbæjar 2018-2030. Sjálfstæðismenn eru eindregið hvattir til að mæta og ræða bæjarmálin.

Aðalfundur fulltrúaráðs - Ásgeir Örn kjörinn formaður

Aðalfundur fulltrúaráðs - Ásgeir Örn kjörinn formaður

Ásgeir Örn Blöndal var kjörinn formaður fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna á Akureyri á aðalfundi í Kaupangi í gærkvöldi, í stað Hörpu Halldórsdóttur sem gaf ekki kost á sér til endurkjörs. Auk hans voru Baldvin Jónsson, Jón Orri Guðjónsson og Rúnar Sigurpálsson kjörnir í stjórn fulltrúaráðs á aðalfundinum. Auk þeirra sitja í stjórn formenn sjálfstæðisfélaganna á Akureyri.

Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins á Akureyri samþykktur

Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins á Akureyri samþykktur

Tillaga kjörnefndar að skipan framboðslista Sjálfstæðisflokksins á Akureyri var samþykkt á fundi fulltrúaráðs flokksins í kvöld. Listann skipa 22 einstaklingar, 11 konur og 11 karlar. Heiðurssætin skipa Elín Margrét Hallgrímsdóttir og Þóra Ákadóttir, fyrrum bæjarfulltrúar flokksins.

Aðalfundur Varnar

Aðalfundur Varnar

Aðalfundur Varnar, félags sjálfstæðiskvenna á Akureyri, var haldinn í Kaupangi í kvöld. Svava Þ. Hjaltalín var endurkjörin formaður Varnar. Svava hefur setið í stjórn Varnar frá árinu 2011, var varaformaður 2011-2012 og formaður frá 2012.

Umræðufundur með Njáli Trausta og Jóni Gunnarssyni 16. febrúar

Umræðufundur með Njáli Trausta og Jóni Gunnarssyni 16. febrúar

Málfundafélagið Sleipnir heldur umræðufund í Kaupangi föstudaginn 16. febrúar kl. 12:00. Njáll Trausti Friðbertsson og Jón Gunnarsson flytja framsögu og svara fyrirspurnum. Allir velkomnir - heitt á könnunni. Fundarstjóri: Stefán Friðrik Stefánsson, formaður Sleipnis

Aðalfundur Varnar, félags sjálfstæðiskvenna á Akureyri, 14. febrúar

Aðalfundur Varnar, félags sjálfstæðiskvenna á Akureyri, 14. febrúar

Aðalfundur Varnar, félags sjálfstæðiskvenna á Akureyri verður haldinn í Kaupangi miðvikudaginn 14. febrúar nk. kl. 17:00. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf. Við bjóðum nýjar félagskonur sérstaklega velkomnar.

Svæði

Sjálfstæðisflokkurinn á Akureyri  |  Geislagötu 5   |   Ritstjóri Íslendings: Stefán Friðrik Stefánsson  |  XD-AK á facebook  |  XD-NA á facebook