Flýtilyklar
Fréttir
Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi samþykktur
01.10.2017 |
Tillaga að framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi var samþykkt á fundi kjördæmisráðs á Akureyri í dag. Þrjú efstu sæti framboðslistans skipa þingmenn flokksins; Kristján Þór Júlíusson, mennta- og menningarmálaráðherra, Njáll Trausti Friðbertsson og Valgerður Gunnarsdóttir.
Baldvin Jónsson kjörinn formaður KUSNA
01.10.2017 |
Aðalfundur Kjördæmissamtaka ungra sjálfstæðismanna í Norðausturkjördæmi fór fram í dag. Baldvin Jónsson í Verði á Akureyri, var kjörinn formaður KUSNA.
Bæjarmálafundur 2. október
30.09.2017 |
Bæjarmálafundur Sjálfstæðisflokksins á Akureyri verður haldinn í Kaupangi mánudaginn 2. október kl. 17.30. Rætt um málefni Norðurorku og umhverfis- og mannvirkjaráðs, raforkuflutninga, jöfnun kostnaðar vegna millilandaflugs, málefni Reykjavíkurflugvallar og skipulagsmál. Sjálfstæðismenn á Akureyri eru eindregið hvattir til að mæta.
Fundur með Sigríði Á. Andersen 28. september
25.09.2017 |
Málfundafélagið Sleipnir boðar til fundar í Kaupangi fimmtudaginn 28. september kl. 20:00. Sigríður Á. Andersen, dómsmálaráðherra, flytur framsögu og svarar fyrirspurnum ásamt Kristjáni Þór Júlíussyni, menntamálaráðherra, og Njáli Trausta Friðbertssyni, alþingismanni. Allir velkomnir - heitt á könnunni.
Aðalfundur Kjördæmissamtaka ungra sjálfstæðismanna í Norðausturkjördæmi 1. október
25.09.2017 |
Aðalfundur KUSNA verður haldinn í Kaupangi á Akureyri 1. október kl. 12:00. Fundurinn er haldinn samhliða kjördæmisþingi Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi sem haldið verður á síðar um daginn. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf skv. lögum Kusna.
Kjördæmisþing á Akureyri 1. október
22.09.2017 |
Stjórn kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi boðar til tveggja funda í kjördæmisráðinu sunnudaginn 1. október kl. 14:00. Fundirnir verða haldnir á 2. hæð veitingahússins Greifans á Akureyri. Seturétt á fundinum hafa aðalmenn í kjördæmisráðinu.
Fundi í fulltrúaráði sjálfstæðisfélaganna á Akureyri frestað
18.09.2017 |
Stjórn fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna á Akureyri hefur ákveðið að fresta fyrirhuguðum félagsfundi ráðsins sem halda átti 28. sept., fram yfir alþingiskosningar sem munu fara fram 28. okt. n.k. Ný dagsetning verður auglýst að afstöðnum alþingiskosningum.