Fréttir

Sjálfstæðisflokkurinn stærstur í nýrri skoðanakönnun

Sjálfstæðisflokkurinn stærstur í nýrri skoðanakönnun

Sjálfstæðisflokkurinn nýtur mests fylgis framboða á Akureyri skv. nýrri skoðanakönnun sem Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands gerði fyrir Morgunblaðið. Sjálfstæðisflokkurinn mælist með rúm 23% og þrjá bæjarfulltrúa. L-listinn myndi gjalda afhroð, fá 13,1% og 1 bæjarfulltrúa í stað 6 nú.

Stjórn Málfundafélagsins Sleipnis ályktar um Evrópumálin

Stjórn Málfundafélagsins Sleipnis ályktar um Evrópumálin

Stjórn Málfundafélagsins Sleipnis samþykkti ályktun um Evrópumálin í kvöld. Þar kemur fram að stjórnin lýsi yfir stuðningi við þá ákvörðun þingflokks Sjálfstæðisflokksins að styðja tillögu til þingsályktunar um að draga umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu til baka.

Fundur í fulltrúaráði sjálfstæðisfélaganna á Akureyri 4. mars

Fundur í fulltrúaráði sjálfstæðisfélaganna á Akureyri 4. mars

Fundur verður í fulltrúaráði sjálfstæðisfélaganna á Akureyri, í Kaupangi, þriðjudaginn 4. mars nk. kl. 20:00. Þar mun kjörnefnd leggja fram tillögu sína að skipan framboðslista Sjálfstæðisflokksins á Akureyri við sveitarstjórnarkosningarnar 31. maí nk.

Pizzufundur og PubQuiz

Pizzufundur og PubQuiz

Vörður, félag ungra sjálfstæðismanna á Akureyri, heldur pizzufund í Kaupangi föstudaginn 21. febrúar kl. 20:00. Halldóra Hjaltadóttir, formaður Ísafoldar, félags ungs fólks á móti ESB-aðild, og Ásgeir Geirsson, formaður Herjans, félags stúdenta gegn ESB-aðild, kynna starfsemi félaganna og svara fyrirspurnum. Að loknum fundinum upp úr kl. 21:00 mun Stefán Friðrik Stefánsson stýra PubQuiz, laufléttum spurningaleik.

Umræðufundur um utanríkismál

Umræðufundur um utanríkismál

Málfundafélagið Sleipnir heldur umræðufund um utanríkismál í Kaupangi laugardaginn 22. febrúar kl. 11:00. Megináhersla verður á stöðu Evrópumálanna, en skýrsla Hagfræðistofnunar um stöðu aðildarviðræðna við ESB hefur nú verið lögð fram. Tómas Ingi Olrich, formaður utanríkismálanefndar Sjálfstæðisflokksins og fyrrum ráðherra og sendiherra, og Halldóra Hjaltadóttir, formaður Ísafoldar, félags ungs fólks gegn ESB, flytja framsögu og svara fyrirspurnum. Boðið upp á létta morgunhressingu - allir velkomnir.

Bæjarmálafundur 17. febrúar

Bæjarmálafundur 17. febrúar

Bæjarmálafundur Sjálfstæðisflokksins á Akureyri verður haldinn í Kaupangi mánudaginn 17. febrúar kl. 20:00. Ólafur Jónsson, bæjarfulltrúi og oddviti Sjálfstæðisflokksins á Akureyri, flytur framsögu um bæjarmálin. Rætt t.d. um miðbæjarskipulagið, 3. áfanga Naustahverfis - Haga, og virkun á Glerárdal. Nefndarmenn og áheyrnarfulltrúar gera grein fyrir stöðu mála í þeirra nefndum.

Fundur með Bjarna og Hönnu Birnu

Fundur með Bjarna og Hönnu Birnu

Hádegisfundur um pólitísku stöðuna með forystu Sjálfstæðisflokksins verður haldinn á veitingastaðnum Bryggjunni föstudaginn 14. febrúar nk. Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, og Hanna Birna Kristjánsdóttir, innanríkisráðherra, flytja framsögu og svara fyrirspurnum. Í boði verður léttur hádegisverður, súpa og brauð. Heitt á könnunni - allir velkomnir.

Svæði

Sjálfstæðisflokkurinn á Akureyri  | Aðsetur: Kaupangi v/Mýrarveg  |  Ritstjóri Íslendings: Stefán Friðrik Stefánsson  |  XD-Ak á facebook