Flýtilyklar
Akureyri til forystu
Óhætt er að segja að verkefni mín sem umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra séu ólík þeim sem ég hafði á minni könnu á liðnu kjörtímabili sem utanríkisráðherra. Það var afar skemmtilegt, lærdómsríkt og mikill heiður að fá að ferðast um allan heim og tala máli okkar Íslendinga í fyrra embætti.
Það er ekki síður ánægjulegt að fá að ferðast um landið okkar sem umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra og finna þann kraft og áhuga sem ríkir í hugum landsmanna þegar kemur að verkefnum á málefnasviði ráðuneytisins.
En sum verkefni þessara tveggja ólíku embætta eru þó nátengd og þar ber kannski hæst norðurslóðamálin.
Ég hef þrívegis nú á síðustu mánuðum komið norður á Akureyri. Í lok mars var ég með erindi á ráðstefnu um orkumálin í Háskólanum á Akureyri og heimsótti í leiðinni skrifstofur Norðurskautsráðsins, CAFF og PAME, en þær mynda stærsta setur vísinda- og ráðgjafarvinnu Norðurskautsráðsins (utan Noregs) og heyra undir ráðuneyti umhverfis-, orku- og loftslagsmála.
Við Íslendingar gegndum formennsku í Norðurskautsráðinu árin 2019–2021 og lagði ég sem utanríkisráðherra mikla áherslu á leiðandi hlutverk okkar sem formennskuríkis. Á þeim árum jukust fjárframlög til þessara mikilvægu skrifstofa en verkefni þeirra eru um hundrað talsins, flest tengd hafinu og líffræðilegum fjölbreytileika. Eftir að formennsku okkar lauk minnkuðu fjárframlögin og gátu skrifstofurnar því ekki sinnt sínum verkefnum nægilega vel.
Ég tel mikilvægt að Ísland sinni norðurskautsmálunum af krafti. Málefni norðurslóða snerta hagsmuni okkar Íslendinga með margvíslegum hætti. Við eigum að vera leiðandi afl á norðurskautinu og reyna eftir fremsta megni að verja hagsmuni okkar og ganga fram með góðu fordæmi, sér í lagi í umhverfismálum.
Ég hef því ákveðið að hækka árleg fjárframlög til skrifstofa CAFF og PAME um 50% til þess að þær geti starfað af sama metnaði og krafti og á formennskuárum Íslands í Norðurskautsráðinu.
Mikilvægt er að nýta áfram þá þekkingu og reynslu sem byggst hefur upp á Akureyri. Þessi ákvörðun festir Akureyri enn frekar í sessi sem höfuðstað norðurslóða á Íslandi.
Guðlaugur Þór Þórðarson
umhverfis- orku- og loftslagsráðherra