Aðalfundur Sjálfstæðisfélags Akureyrar 15. febrúar

Sjálfstæðisfélag Akureyrar boðar til aðalfundar félagsins mánudaginn 15. febrúar kl. 20:00 í Kaupangi við Mýrarveg. Aðalfundinum verður einnig streymt í gegnum zoom.

Á dagskrá fundarins eru hefðbundin aðalfundarstörf samkvæmt 8. gr laga félagsins. Stjórnin leggur á fundinum fram tillögu til breytinga á lögum félagsins.

Stjórnin lýsir eftir framboðum í aðal- og varastjórn félagsins. Áhugasamir sendi tölvupóst á netfangið xdakureyri@gmail.com eða á Jóhann Gunnar Kristjánsson, formann, á netfangið johanngk@gmail.com.

Fundurinn í Kaupangi verður haldinn í samræmi við sóttvarnarreglur sem gera ráð fyrir tveggja metra fjarlægðarmörkum og fjöldamörkum sem miða við 20 manns.

 

Stjórn Sjálfstæðisfélags Akureyrar


Svæði

Sjálfstæðisflokkurinn á Akureyri  |  Geislagötu 5   |   Ritstjóri Íslendings: Stefán Friðrik Stefánsson  |  XD-AK á facebook  |  XD-NA á facebook